Jökul kæliermar og kæliskálmar veita staðbundna verkjastillingu án þess álags sem fylgir lyfjainntöku á líffærin okkar, eins og lifur og nýru. Þetta getur verið sérstaklega mikilvægt fyrir þá sem þegar eru á miklum lyfjum en finna samt fyrir miklum verkjum sem hamla endurhæfingu og styrktaruppbyggingu.
Rannsóknir benda til að kæling í nokkrum stuttum lotum yfir daginn veiti betri verkun en ein löng kæling. Með því móti má nýta áhrifin til að hreyfa sig í skjóli náttúrulegrar verkjastillingar.
Það er þó mikilvægt að hafa í huga að svæðið getur verið tímabundið deyft eftir kælingu. Því er ráðlagt að bíða í minnsta kosti 30 mínútur áður en farið er í mikla hreyfingu eða álag.
Hægt er að panta kæliermarnar á hreyfisport.is eða versla þær hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og Sjúkraþjálfun Garðabæjar á aðeins 5.990 kr.
Notkunarleiðbeiningar
Jökul kæliermar eru einfaldar og öruggar í notkun.
1. Settu ermina í frysti að minnsta kosti tveimur tímum fyrir notkun.
2. Smeygðu henni utan um svæðið þar sem þú finnur fyrir verkjum.
3. Hafðu ermina á þér í að minnsta kosti 15 mínútur.
4. Endurtaktu allt að þrisvar sinnum á sólarhring en láttu að minnsta kosti klukkutíma líða á milli kælingalota.